.......................dagar til aðfangadags.
Hver hefur séð Herbie myndirnar? Ég man að mér þótti þær svaka skemmtilegar, spurning hvort ég finni þær einhversstaðar til að geta synt strákunum mínum þær.
Translate
Wednesday, October 31, 2012
Tuesday, October 30, 2012
Monday, October 29, 2012
Grænahlíð
Prjóni prjóni prjón.......
Þá er komið að næsta kjól :) Grænahlíð varð fyrir valinu eða fjólubláahlíð í þessu tilfelli haha. Kjóllinn mun vonandi passa á stelpu á aldrinum 6 ára og þá er það hvaða stelpa mun eiga afmæli um það leiti sem kjóllinn verður tilbúinn :) Uppskriftina fékk ég hjá Litlu prjónabúðinni.
Þá er komið að næsta kjól :) Grænahlíð varð fyrir valinu eða fjólubláahlíð í þessu tilfelli haha. Kjóllinn mun vonandi passa á stelpu á aldrinum 6 ára og þá er það hvaða stelpa mun eiga afmæli um það leiti sem kjóllinn verður tilbúinn :) Uppskriftina fékk ég hjá Litlu prjónabúðinni.
Einband varð fyrir valinu og núna dökkfjólublátt
Stroffið tilbúið og hringurinn sameinaður.
Friday, October 26, 2012
Wednesday, October 24, 2012
Ungbarnapeysa
Nú býður þessi yndislega peysa bara eftir að eigandinn fæðist svo hún fái að hlýja eigandanum :)
Lanetull og prjónuð á prjóna 2 og 2,5. Garnið fékk ég í rúmfatalagernum og tölurnar í storkinum.
Efni
2012,
Barnapeysur,
frænkur,
gjafir,
lanet ull,
ungbarnaföt
Thursday, October 18, 2012
66....
..... dagar til jóla. Jebb jólabarnið er vaknað og farið að telja niður enda er ég byrjuð að hugsa um jólagjafirnar :) sko jólagjafirnar sem við ætlum að gefa ( og kannski lika sem ég gæti hugsanlega fengið hehe ).
Ég var að skoða fallega jólalinu Ikea á blogginu hennar Dössu G á skreytum Hús. Yndislegt og margt þarna sem ég gæti hugsað mér. Allavegana þá komst ég í ansi mikið jólaskap og ákvað að hefja niðurtalninguna :)
Tuesday, October 16, 2012
fram fram , aldrei að víkja.......
....... Við fórum um helgina niður í laugardal. Fallegt haustveður, gul laufblöð og Kári Steinn var í fantastuði á hlaupahjólinu.
Knús í krús
Prjónarós
Efni
2012,
Barnapeysa,
Haust,
Kári Steinn,
lanet ull,
peysur,
Peysur til sölu,
Prjónaskapur
Friday, October 12, 2012
III.....
... afmæliskakan í þessariv viku var gerð fyrir afa minn. Afi minn er hinn besti karl sem ég þekki, ljúfur, vænn , kurteis og afskaplega góður. Í gær, 9 . okt var mikill afmælisdagur þótt ég hafi einungis farið í 1 afmælisboð :) Hekla Dögg, stóra systir mín átti afmæli og Margrét Hólmfríður systurdóttir mín ( dóttir Jónu Bjarkar ) átti lika afmæli sem og afi minn.
Mamma bauð nokkrum ættingjum i afmælið hans afa sem var haldið á heimilinu þar sem hann býr núna. Það sem hann var glaður enda afmælisbarn mikið. Ég bakaði tertu fyrir hann, gesti hans og aðra heimilismeðlimi.
Mamma bauð nokkrum ættingjum i afmælið hans afa sem var haldið á heimilinu þar sem hann býr núna. Það sem hann var glaður enda afmælisbarn mikið. Ég bakaði tertu fyrir hann, gesti hans og aðra heimilismeðlimi.
Súkkulaðiterta með hindberjafrómasi á milli.
Glæsilegi afmælismaðurinn.
Efni
2012,
afmæli,
Afmæliskaka,
Bakstur,
fromas,
Hindber,
Kökur,
kökuskreyting,
sykurmassi
Thursday, October 11, 2012
Litlir snáðar þurfa........
góða peysu. Hann Ulrik, litli vinur minn í Danmörku , vantaði nýja peysu og ég prjónaði eitt stykki handa honum. Uppskriftina fékk ég í Tinnu blaði nr. 41 ( minnir mig , frekar en 40, hun er allavegana á forsíðunni a öðru hvoru blaðinu ). Hún er prjónuð úr lanetull á prjóna nr. 2 og 2,5
Svarti liturinn er aðalliturinn en hinir fara í munstrið.
Stroffið komið, prjónað á prjóna nr. 2, skipt svo yfir á prjóna nr 2,5.
Fyrsta dokkan búin og 17,5 cm komin af búknum.
Byrjuð á fyrri erminni :)
Stroffið komið, prjónað á prjóna nr. 2, skipt svo yfir á prjóna nr 2,5.
Fyrsta dokkan búin og 17,5 cm komin af búknum.
Búkurinn tilbúinn 27 cm
Fyrri ermin næstum því búin 21,5 cm af 24 cm búnir og dokka nr 2 búin.
Ekki mikil breyting frá síðustu myndinni en ermin er búin og hún endaði í 25 cm :)
Báðar ermarnar komnar :)
Ermarnar komnar á og munsturbekkurinn kominn vel á veg :)
Þá er prjónaskapurinn búin og smáatriðin fjölmörgu eftir, það er að segja frágangurinn.
Peysan tilbúin :)
Knús í krús
Prjónarós
Subscribe to:
Posts (Atom)