Í fyrri vikunni okkar á Tenerife fórum við í Loro Parque, mjög fallegan og flottan dýragarð. Hann var risastór með allavegana 3 risastórum sýningarsundlaugum og fullt af fleiri skemmtilegum stöðum og fullt af fallegum framandi dýrum. Við náðum ekki að sjá allan garðinn svo stór var hann , og rútan sem náði í okkur hjá hótelinu kom allavegana 40 mín of seint Ég held að bæði við fullorðna fólkið og strákarnir höfum öll skemmt okkur rosalega vel.
Byrjar maður ekki alltaf á byrjuninni. Loksins kom rútan okkar og við tók ca klst akstur í dýragarðinn, Loro Parque.
Ég tók eftir því þegar ég var að taka þessar myndir saman að Kiddi minn var alltaf fyrir aftan myndavélina, hann var samt með í ferðinni. Kannski Benni eigi skemmtilega mynd/myndir af honum.
Hér erum við komin inn i garðinn og þetta umhverfi tók á móti okkur.
Górillan var nú ekki mikið að æsa sig þótt hundruðir eða þúsundir af fólki var að glápa og hlæja að rólegheitunum hans. Hann lét bara fara vel um sig og kippti sér ekki upp við áhorfendurnar.
Í garðinum voru þó nokkrar svona bronsstyttur og við töluðum við þær flestar.
Hér sjáið þið Vikinginn minn að skoða fiskana.
Við töluðum við þetta sæljón áður en við fórum á sýningu með þeim.
Sýningarlaugin fyrir sæljónin
Við flotta fjölskyldan og Kiddi hinumegin við myndavélina , spennt að biða eftir fyrstu sýningu dagsins.
Kári var ekki alveg viss með risaskjaldbökuna
Svo voru það höfrungarnir, sýningarlaugin þeirra
Á leiðinni yfir á þriðju sýninguna sáum við hvítt tígrisdýr, svo fallegt
Þau voru reyndar 2 , hitt lá tignarlegt á góðum stað og horfði á okkur mannfólkið. Hvor var að skoða hvern ?
Þarna var þessi risaskjár með fullt af upplýsingum.
Við sáum reyndar engan fíl en fundum þennan flotta bronsfíl, og Vikingur var nógu kjarkaður til að setjast á bak. Það sem hann var stoltur af því :)
Kári Steinn hékk á tönninni í staðinn, fílsbak var of mikið fyrir hann.
Síðasta sýning dagsins hjá okkur var páfagaukasýningin
Dýr geta líka verið pepsisjúklingar , ég skil það nu bara ekki þar sem ég hef aldrei getað drukkið þennan drykk hehe.
Yfirlit yfir dýragarðinn
Sumir voru mjög þreyttir og sváfu alla leiðina heim.
Kveðja og knús
Prjónarós