Ég fór um daginn ásamt Eydísi , systur hans Kidda, og Hildi, konunni hans Axel ( bróður hans Kidda ) á skartgripanámskeið hjá Glit. Ég gerði eitt armband á námskeiðinu og lærði svo að nota vir og allskonar festingar, lása og eyrnalokka. Hlakka til seinna i vor þegar ég fæ tíma til að prófa mig áfram.
Víkingur Atli fór um daginn i afmæli til bekkjarsystur sinnar og þá var nú gott að kunna að búa til armband.
Hér er armbandið sem hann gaf Iðunni Helgu
Víkingur Atli gæti orðið fínn sem handafyrirsæta






