Translate

Tuesday, May 8, 2012

Súkkulaðikakan

Undanfarin ár hef ég alltaf notað sömu uppskrift í afmæliskökurnar fyrir strákana mína.  Þetta er sama uppskriftin og mamma notaði í afmæliskanínurnar mínar ( sama kanínan sem var afmæliskakan hjá mér og bróður mínum í mörg ár, þegar mamma bakaði þessa köku vissi ég að það væri afmæli í vændum hehe ).  Ég hef verið að nota mismunandi þema hjá strákunum. 

Hér eru nokkur dæmi




Víkingur Atli 4 ára



Víkingur Atli 5 ára


Kári Steinn 2ja ára

Eins og þið sjáið þá er ýmisslegt hægt að gera við sömu uppskriftina.  Hvernig afmæliskakan han Kára verður þetta árið kemur í ljós á sunnudaginn :)

Uppskriftin kemur inn seinna.

Afmælispæling

Þessa dagana er ég að skipuleggja 3ja ára afmæli hans Kára Steins.  Ég er alltaf með þema og skipulegg kökur og skreytingar ut fra þvi.  Ég er buin að ákveða þemað með hjálp frá Kára klára og nú eru það kökurnar, komin með 1 kökuform og svona grunnhugmynd um afganginn. Hann vildi lest þannig að ég valdi Tommy the Train.  Strákarnir velja oft þema sem eru ekki í tísku þannig að ef þið vitið um aukahluti með Tommy þá væri frabært að vita af því :) 

 Þetta er svo skemmtilegt )  Svo er það baksturinn og að skreyta.  Vona bara að bóndinn taki hreingerninguna að sér svo ég geti einbeitt mér að hinu.

Hérna eru myndir úr síðasta barnaafmæli, þegar Víkingur varð 5 ára, þá var sjóræningjaþema.






Víkingur valdi þemað en ég fann hvergi neitt sjóræningjalegt enda var það ekki i tísku en ég fann playmosjóræningjadiska, glös, servettur og dúk i tilboðshorninu í Party búðinni og svo skreytti ég með playmoköllum, sjoræningja auðvitað.

Herna er 2ja ára afmælið hans Kára Steins, cars þema ( sem var auðvitað ekki i tisku hehe )








Sunday, May 6, 2012

Haustpeysa

6. maí

Peysunni miðar áfram.

Svo i gær var hún komin svona langt

Í dag er hún svona


Þetta er mjög skemmtilegt, sérstaklega þar sem árangurinn kemur svo vel í ljós þegar mismunandi litir eru notaðir.  Skemmtileg breyting frá prjóninu, gott að geta breytt til öðru hverju :)

Friday, May 4, 2012

Haustpeysa

Hekltímabilið 1. maí - 16. maí

1. mai
Ég er að fara á heklnámskeið og ætla að læra að hekla barnapeysu.  Hlakka mikið til.  Fór og keypti 4 liti i peysuna og nú er að sjá árangurinn.


3. mai
Fór á fyrra heklkvöldið i gærkvöldi og mikið var það skemmtilegt.  Svo óheppilega vildi til að ég rak hægri handlegginn eitthvað i í nótt þegar ég var að sinna Kára Steini og nu er ég stokkbolgin á framhandleggnum.

Hér má sjá árangurinn frá því i gær.



4. mai

Auðvitað gat ég ekki hætt að hekla þrátt fyrir bolgin handlegg og hér má sja afrakstur gærdagsins.



Meira seinna.

Ps. það væri voða gaman að fá viðbrögð hvernig ykkur finnst þetta vera hjá mér.



Thursday, May 3, 2012

Sprautukennsla

Það mætti misskilja titilinn hehe en ég ætla ekki að sýna ykkur hvernig á að sprauta með nálum heldur nokkrar aðferðir til að sprauta kremi á bollakökur ( cupcakes ).





Ég ætla að prófa eitthvað af þessu næstu daga, sýni ykkur árangurinn þegar ég fæ tíma til að baka og skreyta.



Wednesday, May 2, 2012

krydd i tilveruna

Eitt af þvi auðveldara og goða sem ég geri oft en samt aldrei nógu oft er kryddbrauð.  Ég hef verið að leika mér með það og skipta út og prófa eitthvað nýtt með það en yfirleitt  enda ég alltaf i þessari uppskrift.  Fjölskyldunni finnst þetta líka mjög gott og þetta er eitt af því sem tilheyrir aðventunni og lika allan ársins hring.

 Kryddbrauð
Hráefni :
  • 3 bollar Haframjöl
  • 3 bollar hveiti ( eða spelt )
  • 2 bollar sykur ( eða hrásykur )
  • 2 tsk lyftiduft ( eða vínsteinsduft )
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk kanill
  • 1 tsk kakó
  • 1 tsk negull
  • 1 tsk engifer
  • 3 bollar mjólk ( hægt að nota soyamjólk, hrísmjólk eða möndlumjólk )

Aðferð :

  • Allt sett i skál og blandað saman
  • Hitað í ofni á 200°C Í 1 klst.

    Ein uppskrift hjá mér dugar i 2 brauð

Tuesday, May 1, 2012

Bennahúfa

Það er alltaf gott að eiga góða og hlýja húfu, tala nú ekki um þegar húfan passar á höfuðið á einstaklingnum sem mun eiga hana..

Benni broðir bað mig um að prjona á sig hufu þvi hann fann enga sem passaði honum nogu vel.  Eg tok auðvitað þvi fagnandi því þarna var ákveðin áskorun fyrir mig.  Áskorunin var sú að það ég fann enga uppskrift og þurfti þvi að reikna út lykkjuföldan og lengd á húfunni.


Þetta hafðist og var það mjög skemmtilegt að þurfa að finna út úr þessu á eigin spítur :)