Translate

Monday, August 20, 2012

Næsta prjónaverkefni

Þá er komið að þvi að Ulrik , litill vinur minn fái peysu :)  Ætla að prjóna á hann sömu peysuna og ég prjónaði á Víking um daginn


Nema Ulriks peysa verður í öðrum litum.


Mun setja inn myndir eftir hverja dokku.


Friday, August 17, 2012

Lokadagurinn...

.... hjá Víkinginum mínum i leikskólanum.  Ohhh hvað ég er stolt af honum.  Hann er rosalega spenntur en mig grunar nú að hann átti sig ekki alveg á þessu.  Hjá okkur foreldrunum eru blendnar tilfinningar með þennan viðburð.  Nýr kafli að byrja en það er dálítið ógnvænlegt að fara úr hlýjunni og örygginu á Sólborg þar sem allir hafa verið alveg yndislegir við hann.  Þar hefur hann dafnað og þroskast alveg gríðarlega og náð miklum framförum.  Við þökkum öllu því frábæra starfsfólki sem hafa hugsað um Víkinginn okkar og sérstaklega henni Drífu sem hefur séð um hann frá degi 1 til síðasta dags.

Í gær fékk hann að fara með köku í leikskólann og var hann ansi ánægður með sig :)  Hann hafði pantað bangsaköku þannig að ég bjó til "gamaldags" afmælisköku handa honum. 


Hann var alveg hæstánægður með hana og hlakkaði mikið til að halda kveðjuveisluna sína.

Í dag á Sólborg 18 ára afmæli og í tilefni af því var búningadagur og dansiball.


Víkingur fór með pakka handa Drífu sinni, gaf henni fallegan , röndóttan postulíns kaffibolla með loki. 

Vikingur nýbyrjaður á leikskólanum og hér er verið að halda upp á 2ja ára afmælið hans.






Spurning hvort við hefðum átt að hafa farið með drenginn í klippingu hehe


Þessi 2 hafa verið óaðskiljanleg síðan þau voru 2ja ára.  Yndisleg saman og passa vel upp á hvort annað.











Thursday, August 9, 2012

Kjóllinn Alda

Enn bætist við kjólinn Öldu, afskaplega fallegur kjóll og skemmtilegt að prjóna hann.  Yndislegi bleiki liturinn er unun að vinna með og skemmtileg tilbreyting frá dásamlegu strákaflíkunum :)


Garnið sem ég prjóna úr, bómullargarnið Alba frá BC garn.


1 dokkan búin


2 dokkur búnar :)


14. ágúst : Nú hefur morguninn farið i það að rekja upp það sem ég gerði i gær vegna villu sem ég gerði.  Frekar mikil tímaeyðsla að gera svona asnalega villu og það er ekkert skemmtilegt að rekja upp við gataprjón. Jæja ég er að komast á réttan stað, þetta kennir mér líka að nota hjalparband !


3 dokkur búnar.  Breytti efri hlutanum lítillega , fækkaði lykkjunum mun meir en uppskriftin segir til um þar sem mér fannst kjóllinn annars verða svo víður og stór.

 
Kjóllinn klár, eingöngu eftir að hekla i kringum ermarnar og setja tölu og ganga frá endum.
 
 
Kjóllinn tilbúinn, þá er bara eftir að finna sæta fyrirsætu sem vill máta kjólinn fyrir mig :)

Wednesday, August 8, 2012

Tuesday, August 7, 2012

Klifurkötturinn minn



Víkingurinn minn er sko ekki lofthræddur.  Það sýndi hann og sannaði á úlfljótsvatni um verslunarmannahelgina.  Þar er klifurturn og hann klifraði hann alveg upp á topp og fannst mömmunni nóg um ( enda afskaplega lofthrædd ). 















Monday, August 6, 2012

Fyrsta dokkan

Ég tók auðvitað prjónanna með mér í útileiguna um verslunarmannahelgina.  Við skelltum okkur á Úlfljótsvatn með mömmu, Önnu Maríu móðursystur minni og Benna bróður mínum.  Ég notaði nokkur tækifæri meðan strákarnir voru á róló eða i göngutur með hinum og þessum í fjölskyldunni ( eg skellti mér líka í göngutúr með strákunum ) og naut lífsins a meðan og prjónaði.  Ég náði að prjóna 1 dokku í kjólnum Alda frá litlu prjónabúðinni.  Það er 2,5 munstur af 9 í kjólnum.  Yndislegt að sitja í útileigustólnum sem ég keypti mér í byko fyrir helgina og prjóna í góða veðrinu.



Ég set svo mynd af mér að prjóna í útilegunni þegar ég fæ myndirnar frá bróður mínum ( okkar vél varð batteríslaus ).

Thursday, August 2, 2012

Næsta verkefni og fyrrum verkefni

Næsta prjónaverkefni :)

Alltaf skemmtilegt að byrja á nýjum verkefnum og nu er ég búin að ákveða hvaða flík verður fyrir valinu.  Kjóllinn Alda úr litlu prjónabúðinni verður prjónuð um leið og ég hef klarað 3 peysur sem eru komnar á lokastig. 

Hérna eru garnið sem ég ætla að nota í kjólinn, yndislega mjúkt bómullargarn.  Þar sem ég á stráka þá nota ég hvert tækifæri til að prjóna bleikt og kjóla :)


Ég náði að klára peysuna á Víking Atla i gær, prjónaði seinustu umferðinar á slyso ( eg er  alltaf með prjonadótið með mér ef timi skyldi verða til svo ég geti gripið í þá ).  Kári Steinn húrraði niður litla brekku á hjoli hjálmlaus og fékk þessa svaka kúlu á hausinn.  Sem betur fer er hann með harðan haus og fekk engan heilahristing en var ansi þreyttur allt gærkvöldið.  Þvi miður gleymdist að taka mynd af kulunni hehe þvi hún var horfin í morgun, bara sárið eftir. 


Hér á eftir að ganga frá lausum endum og koma peysunni svo til tengdamömmu sem saumar hana og klippir og þá get ég prjónað lista á peysuna og fest á hana fallegu tölurnar sem mamma keypti handa mér. Fallegu tölurnar eru úr birki.

Hinar 2 peysurnar sem ég á eftir að klára eru 1 lopapeysa sem ég á eftir að ganga frá kanti og festa á tölur og svo önnur úr 2x kambgarni en þar er aðeins meiri vinna eftir ( 1/2 ermi og allur bekkurinn er eftir hehe ).