Translate

Thursday, October 11, 2012

Litlir snáðar þurfa........

góða peysu.   Hann Ulrik, litli vinur minn í Danmörku , vantaði nýja peysu og ég prjónaði eitt stykki handa honum.  Uppskriftina fékk ég í Tinnu blaði nr. 41 ( minnir mig , frekar en 40, hun er allavegana á forsíðunni a öðru hvoru blaðinu ).  Hún er prjónuð úr lanetull á prjóna nr. 2 og 2,5



Svarti liturinn er aðalliturinn en hinir fara í munstrið.


Stroffið komið, prjónað á prjóna nr. 2, skipt svo yfir á prjóna nr 2,5.


Fyrsta dokkan búin og 17,5 cm komin af búknum.

 
Búkurinn tilbúinn 27 cm
 
 
 
Byrjuð á fyrri erminni :) 
Fyrri ermin næstum því búin 21,5 cm af 24 cm búnir og dokka nr 2 búin.
 
Ekki mikil breyting frá síðustu myndinni en ermin er búin og hún endaði í 25 cm :)
 
Báðar ermarnar komnar :)
 
 
Ermarnar komnar á og munsturbekkurinn kominn vel á veg :)
 
 
 Þá er prjónaskapurinn búin og smáatriðin fjölmörgu eftir, það er að segja frágangurinn.
 
 
 
Peysan tilbúin :)
 
Knús í krús
Prjónarós

Wednesday, October 10, 2012

Vitundarvakning...

...ar vika Tilveru er þessa vikuna.  Byrjaði i gær og stendur fram að næsta miðvikudag.


Þessa vikuna mun Tilvera reyna að vera eins mikið og þau geta i fjölmiðlum og umræðum landsmanna.  Ég vona að það muni hafa þau áhrif að sjonarmið þeirra sem standa í þessari baráttu komist til skila og að fólk muni öðlast meiri skilning á þessu vandamál og erfiðleikum sem tilheyrir þessum sjúkdómi.


Barbafín....

... varð fyrir valinu hjá henni Sólveigu Birtu sem hélt upp á 6 ára afmælið sitt um helgina.  Ég var beðin um að baka barbafínköku fyrir afmælisstelpuna sem ég gerði auðvitað með glöðu geði :).  Ég fékk liti og sykurmassa hjá Allt i köku.  Súkkulaðikakan mín vinsæla var notuð og smjörkrem :)

 
 
 

 
 
Jæja hvað finnst ykkur? 
 
Sæt og fín eins barbafín á að vera eða ... ?
 
Knús í krús Prjónarós
 

 
 

Tuesday, October 9, 2012

uppskrift......................

........... af döðlu og súkkulaðikökunni sem ég póstaði inn hér fyrir neðan.


Mjög góð og saðsöm :)
 
Döðlu-hnetu súkkulaðikaka
 
 
Hráefni :
4 egg
1 bolli sykur
1 1/2 döðlur
200g suðusúkkulaði , saxað
1/2 bolli hveiti
1 tsk lyftiduft
 
Aðferð :
 
Egg og sykur þeytt vel saman.
Öllu hinu blandað saman við.
Skellt í 2 form og hitað í miðjunni á ofninum  175 °C í 30-35 mín.
 
Á milli skar ég niður banana og setti á neðri  botninn og svo rjóma og efri botninn ofan á.  Ofan á kökuna hellti ég bráðnu súkkulaði og skreytti með jarðaberjum ( líka hægt að setja valhnetur ofan á ).
 
 
 


Monday, October 8, 2012

Afmæli afmæli....

.... maðurinn minn átti afmæli seinasta laugardag ( núna um helgina ) og hann boðaði til afmæliskaffi um kvöldið. Ég bakaði kökur en þurfti svo bara eina þvi mætingin var ekki svo fjölmenn hehe.  Ég setti saman eina köku sem var ansi góð.  Döðlusúkkulaðikaka með rjóma og banana á milli :) 

 
 


 
Notaði tækifærið og var með mávastellið sem við fengum í brúðkaupsgjöf :)
 
Knús í krús

Saturday, October 6, 2012

Svooooo sættttttt.

Það er ýmisslegt svo sætt í rúmfatalagernum þessa dagana. 

Eins og þessi kassi



Sæt klukka

 
Púðar
 
 
Rumföt
 

 

 

 
Skemill með geymslu
 


Jæja ég held að það sé komið nóg í bili , ég keypti svaka sætar diskamottur frá þeim í seinustu viku en finn ekki mynd af þeim.

Knús Í krús Prjónarós

 

 

 
 

Friday, October 5, 2012

Alþjóðlegi stómadagurinn

..... er á morgun 6. október.  Í tilefni af því var fundur hjá stómasamtökunum með flottari veitingum i gær.  Ég bakaði 1 köku fyrir stómasamtökin.  Súkkulaðikaka með jarðaberjafrómasi á milli og sykurmassaskreytingu.




Dálítið skökk og skæld en smakkaðist MJÖG vel og allir ánægðir.