Translate

Friday, October 26, 2012

58........

....................... og í dag er það fyrir afa minn.
 

 
Knús í krús Prjónarós
 

Wednesday, October 24, 2012

59..........

..........dagar :)
 


Alltaf að skoða eitthvað sætt.


Ungbarnapeysa

 
Nú býður þessi yndislega peysa bara eftir að eigandinn fæðist svo hún fái að hlýja eigandanum :)
 
Lanetull og prjónuð á prjóna 2 og 2,5. Garnið fékk ég í rúmfatalagernum og tölurnar í storkinum.
 
 
  


Stroffið komið

Peysan nærri því tilbúin, vantar listann og tölurnar :)
 
 
 
 
 
Knús í krús
Prjónarós
 

Thursday, October 18, 2012

65...

... dagar til jóla :)
 
Yndislegir diskar frá Ikea ,ekki bara jóla.
 
 

66....

..... dagar til jóla.  Jebb jólabarnið er vaknað og farið að telja niður enda er ég byrjuð að hugsa um jólagjafirnar :)  sko jólagjafirnar sem við ætlum að gefa ( og kannski lika sem ég gæti hugsanlega fengið hehe ).

 
Ég var að skoða fallega jólalinu Ikea á blogginu hennar Dössu G á skreytum Hús.  Yndislegt og margt þarna sem ég gæti hugsað mér.  Allavegana þá komst ég í ansi mikið jólaskap og ákvað að hefja niðurtalninguna :)
 

Tuesday, October 16, 2012

fram fram , aldrei að víkja.......

....... Við fórum um helgina niður í laugardal.  Fallegt haustveður, gul laufblöð og Kári Steinn var í fantastuði á hlaupahjólinu.

 
 
 

 

 
Knús í krús
 
Prjónarós
 
 

Friday, October 12, 2012

III.....

... afmæliskakan í þessariv viku var gerð fyrir afa minn.  Afi minn er hinn besti karl sem ég þekki, ljúfur, vænn , kurteis og afskaplega góður.  Í gær, 9 . okt var mikill afmælisdagur þótt ég hafi einungis farið í 1 afmælisboð :)  Hekla Dögg, stóra systir mín átti afmæli og Margrét Hólmfríður systurdóttir mín ( dóttir Jónu Bjarkar ) átti lika afmæli sem og afi minn.

Mamma bauð nokkrum ættingjum i afmælið hans afa sem var haldið á heimilinu þar sem hann býr núna.  Það sem hann var glaður enda afmælisbarn mikið.  Ég bakaði tertu fyrir hann, gesti hans og aðra heimilismeðlimi. 

 
Súkkulaðiterta með hindberjafrómasi á milli.
 
 
 
 
 
Glæsilegi afmælismaðurinn.
 
Svo í tilefni af bleika deginum í dag þá voru þessar myndir tekin í morgun.

 
 
 

Knús í krús