Translate

Monday, August 12, 2013

Ísbíllinn

Um helgar kemur ísbíllinn í Munaðarnes og við notuðum tækifærið til að kaupa okkur ís á þessum heita degi :)  Strákunum finnst þetta mjög svo spennandi og þeir fengu að velja sér ís.  Þetta minnir mig alltaf á ísbílinn í Danmerku.  Man hvað mér fannst spennandi þegar ég heyrði í ísbílnum og fékk að velja ís til að kaupa.





Molarnir mínir :)



Friday, August 9, 2013

Ungbarnahúfa

Vinkona mín , hún Margrét Vala, og maðurinn hennar Logi eignuðust dreng nr.2 í maí.  Ég átti svo svakalega fallegt hvítt silkigarn ( sem heitir Jaipur fino ) og ákvað að prjóna á hann ungbarnahúfu og vettlinga við.  



Fallegi Tómas Diðrik með húfuna fínu


Hér sést munstrið ofan á húfunni.

Húfan er prjónuð á prjóna nr.2 og uppskriftin er í Lopi og band II frá 2011 ( ungbarnablað ).  Uppskriftin er nr. 6 í blaðinu.


Thursday, August 8, 2013

Norðurá

Fyrsta kvöldið á fyrsta degi fórum við í göngutúr úr bústaðnum og niður að Norðurá.  Yndislegt veður og það er svooooooo fallegt þarna.


Ég og Kári Steinn


Litla gullið mitt að vísa veginn

Stopp hér er hættulegt !


Feðgarnir að týna í blómvönd







 
 

 
















Wednesday, August 7, 2013

Munaðarnes enn á ný

Dagur 1.

Við vorum komin upp í munaðarnes á laugardegi ( ég fór að hitta vinkonur minar á föstudagskvöldinu þar sem við vorum flestar á landinu þetta kvöld ).  Þessi laugardagur var algjört æði, svooooo heitt og strákunum þótti of heitt að vera i sundskýlunni haha og þeir bjuggu i pottinum ( sem þeir gerðu reyndar alla vikuna ).  Ég fann mér góðan stað í skugga og sól eftir að við vorum búin að koma okkur vel fyrir í bústaðnum og byrjaði auðvitað að prjóna.  Kiddi og strákarnir nutu lífsins þannig að þetta gæti bara ekki verið betra.












Tuesday, August 6, 2013

Ferðafélagar

Fyrir nokkrum árum fór móðursystir min í göngutúr ;)  í Frakklandi.  Reyndar var þetta meir en bara göngutúr þvi hún gekk jakobsveginn eða um 800 km eða meir ( man það ekki alveg ).  Þar kynntist hún 5 frábærum einstaklingum og hafa þau verið í góðu sambandi síðan.  Í fyrra fór hún ásamt mömmu og hitti ferðafélaga sína í Belgíu og var hópurinn orðin
aðeins stærri.  Þar var ákveðið að hittast 1 sinni á ári í heimalandi þeirra en þessi hópur er frá Frakklandi, Belgíu, Hollandi og Íslandi.  Var ákveðið að í ár myndu þau hittast hér á fróni. 15 manns var samankominn heima hjá mömmu um daginn og bað mamma mig um að baka fyrir sig köku til að hafa i desert.

Ég samþykkti það en auðvitað varð kakan ekki eins og hún átti að vera þannig að nú voru góð ráð dýr og ég skellti í aðra köku með stuttum fyrirvara en hún heppnaðist líka svona vel.


Útkoman varð púðursykurmarengs með sítrónucurlikremi og rjóma.  Sumarleg og sæt.



Monday, August 5, 2013

Jón

Næsta verkefni er peysa á bróður minn og valdi hann peysuna Jón.


Stroffið

Stroffið búið

Munstrið neðst á myndinni búið




2 hnyklar af aðallit búnir í búk, 39 cm af 44.



Hér var ég búin að týna tölunni af hnyklum og þess háttar ;)


Svo er komið að því.
Peysan tilbúin og Benni kominn í hana.


Æðisleg peysa sem fer honum stórvel.





Friday, August 2, 2013

Hanakambar

Það er alltaf fjör í baði.  Kári Steinn hefur hinsvegar  ekki verið neitt æstur í að láta þvo sér um hárið og fara undir sturtuna en nú segir hann að hann þorir því næstum því ;)