Translate

Tuesday, April 15, 2014

Uglan Kata


Í gær sýndi ég heilgalla sem ég prjónaði fyrir bróður minn ( ekki á hann því þá væri hann aaaaaaaaaaaansi stór, heldur sængurgjöf fyrir vin hans )með gallanum lét ég fylgja með eina uglu sem vinkona mín, hún Kata, heklaði.  Mér fannst það við hæfi þar sem stúlkan sem fær ugluna heitir einmitt Ugla.


Hérna er samfellan ásamt uglunni ( myndin hefur komið hér fram áður ;)  )


Er hún ekki æðisleg ?


Algjört bjútý.

Hér eru svo mynd af annarri uglu sem ég gaf Skildi litla Vindar, syni Tönju vinkonu minnar.  


Þessar uglur eru svo fallegar og vel heklaðar..

Hvað finnst ykkur?
Væri mjög gaman að fá komment ef þið eruð að lesa :)
Kv. Prjónarós



Monday, April 14, 2014

Sængurgjöfin

Benni bróðir bað mig um að prjóna sængurgjöf handa dóttur vinar síns.  Barnið var auðvitað ekki fætt þegar ég byrjaði en það var löngu fætt þegar ég náði að skila því af mér, jól og annað tafði mig þarna inn á milli.

Ég notaði Yaku garn í þetta og uppskriftina fann ég í UngbarnaTinnu blaði nr. 14

Önnur skálmin tilbúin

Báðar skálmarnar tilbúnar

Búkurinn tilbúinn
Gallinn varð oggulítið stærri en ég bjóst við en það er betra að það sé stærra en minna í þessu tilfelli ;) Ég fór samt alveg eftir öllum málum sem prjónablaðið gaf upp og gallinn átti að passa á 1 árs barn en ég hugsa að barnið muni nú passa öllu lengur í hann hehe.

Gallinn tilbúin en eftir að setja listana framan á og tölur


Gallinn tilbúinn
Með gallanum er ugla hekluð af vinkonu minni, henni Kötu.


Kveðja Prjónarós




Friday, April 11, 2014

Blúndukjóll :)

Jájá svona er það stundum, þá hellist þörfin yfir mann að prjóna eitthvað bleikt og stelpulegt :)  Mér þykir ansi skemmtilegt að prjóna litla kjóla og þessi kjóll varð fyrir valinu.



Nú veit ég ekki hvort það sé einhver regla á hvorri öxlinni tölurnar eigi að vera en ég ákvað að hafa þær þarna og þetta er framhliðin.


Og þetta er bakhliðin


Bakið

Neðst á kjólnum


Framan á kjólnum.

Svo er það spurningin um stærð, uppskriftin segir 9-12 mánaða.  Einhver sem á litla stelpu á þeim aldri sem langar að kynna henni fyrir fyrirsætustörfunum?

Kv. Prjónarós

Thursday, April 10, 2014

Fuglar og fiðrildi



Ég tók mig til og föndraði eitt fermingarkort um daginn fyrir hana Þóru Björk ( frænku og barnapíu strákana).

Fiðrildið er límmiði sem ég keypti fyrir löööööööööööööngu síðan en ég límdi hann á vellum pappir og saumaði svo munstur í það, ljósgræni pappírinn er japanskur pappír sem ég keypti líka fyrir löngu síðan. Ég hef nefnilega ekki keypt nýjan föndurpappír i mörg ár nema þessa fugla sem eru á kortinu en þá keypti ég fyrir jólin í hittifyrra í söstrenes grene :)  Um að gera að nýta þetta allt.


Kveðja 



Wednesday, April 9, 2014

Benedikt Snær








Litli, yndislegi frændi minn.  Oggulitill, maður er fljótur að gleyma hve lítil þessi börn eru þegar þau fæðast.  Við fjölskyldan og Benni bróðir gáfum honum þessa peysu í skírnargjöf.  Hún er ansi smá en hann getur vonandi notað hana eitthvað.

Hérna er garnið sem ég notaði

Hérna er peysan tilbúin við hliðin á ungbarnamynd af Kára mínum



Þessi ungi herramaður er alveg yndislegur og algjör rúsina.  Á myndunum hér fyrir ofan er hann 2ja mánaða gamall en hér fyrir neðan er hann 3ja mánaða gamall.




Hérna er hann með systur sinni Amelíu Björk.


Yndisleg systkini.

Kv. stolt frænka






Tuesday, April 8, 2014

Á skautum

Í mars hittust krakkarnir i bekknum hans Víkings Atla í skautahöllinni í Laugardalnum ásamt foreldrum og systkinum.  Strákunum fannst þetta ansi skemmtilegt, úthaldið hjá Kára Steini var ekki mikið en gaman að fá að fara aðeins á skautana með pabba sínum.










Alltaf skemmtilegt á skautum.



Thursday, April 3, 2014

bleik Tinna





Garnið sem ég valdi í þessa peysu heitir Merino soft Superwash og er það 100 % hrein merinoull.  Prjónastærð 2,5 og uppskriftin er úr Tinnu ÝR 41, uppskrift nr. 1.  Litirnir sem ég valdi eru númer 41 ( þessi bleiki ) og úr Lotu 5, Litur 1 ( þessi hvíti ) úr Lotu 15 og þessi grái er 01 úr Lotu 3.


Stroffið tilbúið og byrjuð á búknum


Fyrsti hnykillinn búinn, 9 cm af  21 cm.



Tilbúin

Hérna sést aftan á þessa.


Þessi peysa er til sölu.

Langaði að sýna ykkur þessa snaga sem frænka mín var að gera.  Við erum svo heppin að eiga 3 snaga frá henni eins og sést á myndunum hér fyrir ofan.