Translate

Tuesday, May 15, 2012

Tjú tjú



Eins og ég hef sagt áður þá var þemað, lest, tommy the train og blár.  Þá var ekkert annað í stöðunni en að baka eina lest :)  Ég var svo heppin að fá lánað lestarform frá Wilton og þá var ekki aftur snúið.
Ég notaði skúffukökuuppskriftina mina góðu. Siðan bakaði ég kökuna.

Þetta eru 2 helmingar og eg skelli þeim saman og limi saman með smjörkremi.
Siðan þek ég kökuna með smjörkreminu bláa.
Ég kaupi sykurmassann frá Allt í köku eins og svo margt annað sem ég nota í kökugerðina.
Svo hnoða ég litina inn í sykurmassa.
Bláa litinn er Sugarflair gellitur  baby blue frá Allt í köku
Rauði liturinn er Sugarflair gellitur christmas red frá Allt í köku, til að fá rauða litinn þarf að nota örlítið af gulum með, annars verður liturinn alltaf bleikur
Guli liturinn er wilton litur golden yellow frá húsasmiðjunni
svarti liturinn er Sugarflair fljótandi litur super black og kakóduft
 Síðan er sykurmassinn flattur ut og skellt a kökuna, motað að vild.  Passa bara að sykurmassinn þornar ef hann er skilinn eftir frammi a borði og þá harðnar hann.  Þannig að geyma sykurmassann i poka eða plasti meðan ekki er verið að nota hann.









Monday, May 14, 2012

Afmælisveislan

Held að ég hafi einhvern tíman sagt frá því áður en mér þykir afskaplega gaman að baka :)  Auðvitað notaði ég tækifærið eins og svo oft áður og bakaði fyrir afmælið hans Kára Steins :)  Þemað hjá honum voru lestir og fór ég dálitið eftir Tomma lest.



Blátt, lestir voru málið í ár.  Mjög skemmtilegt þema og ég fékk útrás fyrir litagleðina :)




Að sjálfsögðu bakaði ég 2 tegundir af bollakökum, toblerone og vanillu.



Ég bakaði lika daim pavlovu með toblerone-mascarpone rjóma


Síðan kom afmæliskaka

Sleikjó kökur eða á ensku popcakes


Svo bakaði ég bollur sem sjást hér í skál.



Uppskriftirnar koma inn næstu daga :)



Sveitaferð

Á afmælisdaginn hans Kára Steins var sveitaferð með leikskólanum og við hjónin fórum að sjálfsögðu með drengjunum okkar í sveitina til að skoða dýrin.

Kári Steinn var EKKI hrifin af dýrunum en Víkingur er orðinn aðeins hugrakkari og þorði að halda á lambi, hvolpi og kanínu :)












Ferðin byrjaði vel og allir voða spenntir að fara að skoða dýrin. Kári Steinn var mjög spenntur og ánægður enda varð hann 3ja ára þennan morgun.

Kára Steini leist ekki nógu vel á dýrin en þau voru mjög skemmtileg þegar þau voru langt frá honum og inni í búrum.


Vikingur var ansi duglegur að vilja koma við dýrin og hræðslan hans við dýr er vonandi að hristast af honum

Friday, May 11, 2012

Endalausa kortið

Svo flott kort, eg hef ekki gert kort i nærri þvi ár núna enda er allt skrapp og kortadótið mitt pakkað niður.  Þegar ég sá þetta kort á youtube klæjaði mig í fingurnar til að gera eitthvað með pappír en vegna plássleysis hér heima við þá verður það að biða aðeins lengur.

Thursday, May 10, 2012

3ja ára :)

Þá er litli gullmolinn minn orðinn 3ja ára, nánar tiltekið seinasta mánudag þann 7. maí.  Man eins og það var í gær að litli Kári Steinn leit dagsins ljós og strax á fyrsta degi sýndi hann sinn persónuleika.  Hann er fyndinn, prakkari og elskar lifið.  Hann er snöggur, kraftmikill og ákveðinn.






Fiðrildi

Sá svakalegu fallegu fiðrildi a facebook og matti til með að deila þeim með ykkur.  Þegar ég verð orðin færari i heklinu ætla ég að hekla svona og nota i eitthvað fallegt :)


Fann þau a þessari herna facebooksiðu sem eg skil hreinlega ekki neitt sem stendur þarna en falleg eru fiðrildin, hvað finnst ykkur?

Tuesday, May 8, 2012

Súkkulaðikakan

Undanfarin ár hef ég alltaf notað sömu uppskrift í afmæliskökurnar fyrir strákana mína.  Þetta er sama uppskriftin og mamma notaði í afmæliskanínurnar mínar ( sama kanínan sem var afmæliskakan hjá mér og bróður mínum í mörg ár, þegar mamma bakaði þessa köku vissi ég að það væri afmæli í vændum hehe ).  Ég hef verið að nota mismunandi þema hjá strákunum. 

Hér eru nokkur dæmi




Víkingur Atli 4 ára



Víkingur Atli 5 ára


Kári Steinn 2ja ára

Eins og þið sjáið þá er ýmisslegt hægt að gera við sömu uppskriftina.  Hvernig afmæliskakan han Kára verður þetta árið kemur í ljós á sunnudaginn :)

Uppskriftin kemur inn seinna.