Alltaf skemmtilegt á skautum.
Translate
Showing posts with label vinir. Show all posts
Showing posts with label vinir. Show all posts
Tuesday, April 8, 2014
Á skautum
Í mars hittust krakkarnir i bekknum hans Víkings Atla í skautahöllinni í Laugardalnum ásamt foreldrum og systkinum. Strákunum fannst þetta ansi skemmtilegt, úthaldið hjá Kára Steini var ekki mikið en gaman að fá að fara aðeins á skautana með pabba sínum.
Thursday, January 3, 2013
Hanna Bára og Alda
Loksins loksins loksins komst kjóllinn Alda i hendur vinkonu minnar. Hún býr ásamt fjölskyldu sinni í Kanada og seinasta sumar eignuðust þau 3ja gullmolann sinn hana Hönnu Báru. Ég prjónaði á þá litlu kjól en það tók svo timana tvenna að koma kjolnum til hennar. Ég notaði svo tækifærið um daginn þegar þau komu hingað til landsins í jólafrí. Þau voru svo indæl að taka mynd af snótinni í kjólnum fyrir mig og gáfu leyfi til að birta þær hér á blogginu.
Er hún ekki fin og yndisleg..?
Kv. Prjónarós
Efni
2012,
garn,
Kjólar,
Prjónaskapur,
sængurgjöf,
ungbarnaföt,
vinir
Thursday, October 11, 2012
Litlir snáðar þurfa........
góða peysu. Hann Ulrik, litli vinur minn í Danmörku , vantaði nýja peysu og ég prjónaði eitt stykki handa honum. Uppskriftina fékk ég í Tinnu blaði nr. 41 ( minnir mig , frekar en 40, hun er allavegana á forsíðunni a öðru hvoru blaðinu ). Hún er prjónuð úr lanetull á prjóna nr. 2 og 2,5
Svarti liturinn er aðalliturinn en hinir fara í munstrið.
Stroffið komið, prjónað á prjóna nr. 2, skipt svo yfir á prjóna nr 2,5.
Fyrsta dokkan búin og 17,5 cm komin af búknum.
Byrjuð á fyrri erminni :)
Stroffið komið, prjónað á prjóna nr. 2, skipt svo yfir á prjóna nr 2,5.
Fyrsta dokkan búin og 17,5 cm komin af búknum.
Búkurinn tilbúinn 27 cm
Fyrri ermin næstum því búin 21,5 cm af 24 cm búnir og dokka nr 2 búin.
Ekki mikil breyting frá síðustu myndinni en ermin er búin og hún endaði í 25 cm :)
Báðar ermarnar komnar :)
Ermarnar komnar á og munsturbekkurinn kominn vel á veg :)
Þá er prjónaskapurinn búin og smáatriðin fjölmörgu eftir, það er að segja frágangurinn.
Peysan tilbúin :)
Knús í krús
Prjónarós
Wednesday, October 10, 2012
Barbafín....
... varð fyrir valinu hjá henni Sólveigu Birtu sem hélt upp á 6 ára afmælið sitt um helgina. Ég var beðin um að baka barbafínköku fyrir afmælisstelpuna sem ég gerði auðvitað með glöðu geði :). Ég fékk liti og sykurmassa hjá Allt i köku. Súkkulaðikakan mín vinsæla var notuð og smjörkrem :)
Jæja hvað finnst ykkur?
Sæt og fín eins barbafín á að vera eða ... ?
Knús í krús Prjónarós
Efni
2012,
afmæli,
Afmæliskaka,
Bakstur,
kökuskreyting,
smörkrem,
Súkkulaðikaka,
sykurmassi,
vinir
Monday, September 3, 2012
40 ára ......
Í tilefni af fertugs afmæli vinkonu minnar bað hún mig að baka köku fyrir sig :) Það var nú lítið mál. Ég mátti alveg ráða hvernig köku ég vildi gera og hvernig hún yrði útlitandi. Eina sem hún vildi var súkkulaðiterta :)
Ég ákvað því að hafa það súkkulaðitertuna mína góðu með hindberjafromas a milli og smjörkremslagi ofan á með hindberjabragði.
Nokkrir það fór einn svona botn í kökuna ( hinir foru í afmælistertuna hans Víkingsins mins )
Yst a súkkulaðikökubotninn setti ég góða smjörkremsrönd og svo fyllti ég af hindberjafrómasi þar fyrir innan..
Svo var hinn botninn settur ofan á og smjörkrem smurt yfir alla kökuna.
Svo fór sykurmassinn ofan á og þar sem þetta var afmæli þá var tilvalið að búa til pakka.
Heildarútkoman.
Efni
2012,
Afmæliskaka,
Bakstur,
fromas,
Súkkulaðikaka,
sykurmassi,
vinir
Subscribe to:
Posts (Atom)











































