Translate

Showing posts with label Lopi. Show all posts
Showing posts with label Lopi. Show all posts

Tuesday, January 14, 2014

Vettlingar



Það kom að því að ég prjónaði fyrstu vettlingana mína.  Kiddi bað mig um að prjóna á sig lopavettlinga sem hann gæti notað þegar hann fer í ferðir í hjálparsveitarskólanum.  Ég leitaði út um allt og loks fann ég uppskrift af karlmannsvettlingum í vettlingabókinni sem mamma gaf mér í jólagjöf i fyrra.  Bókin heitir Vettlingabókin, Gamlir og nýjir vettlingar og er eftir Kristínu Harðardóttur.  Uppskriftin heitir Stuðlabrugðnir karlmannsvettlingar og eru úr léttlopa. Vettlingarnir í þessari eru unnir eftir gömlum íslenskum vettlingum fra´mismunandi tímum, þeir elstu frá um 1880.  Stuðlabrugðnir karlmannsvettlingar voru algengir á fyrri hluta 20. aldar.  Þeir eru víða til a söfnum, allir mórauðir og tvíþumla en prjónaðir úr misgrófu bandi.  Ég hafði vettlingana hans Kidda aðeins með 1 þumli á vettling.


Ég verð að segja að ég er nokkuð ánægð með þá þótt eigandi þeirra finnst þeir vera dálítið skrýtnir hehe.  Hann var samt ánægður með að vera komin með vettlinga og bað um annað par sem væru alveg sléttir ;)  

Að lokum verð ég bara að segja frá æðislegum kjúklingarétt sem ég eldaði um daginn, Kjúklingur með spínat, sætum kartöflum, kirsuberjatómötum, fetaosti og balsamik gljáa.  Uppskriftin er hér http://ljufmeti.com/2013/08/07/kjuklingur-med-saetum-kartoflum-spinati-og-fetaosti/.  Endilega prófið.  Ég ætla að prófa mig áfram með 1 nýrri uppskrift í hverri viku þetta árið og reyna fleiri nýja kjúklingarétti.  


Thursday, January 9, 2014

Á döfinni

Ég er byrjuð að geta prjónað á fullu á ný og er með 2 ólík verkefni í gangi.  Ég verð að geta skipt á milli svo ég fái ekki leið á verkefninu.  Þessi 2 verkefni eru líka svo svakalega ólík þannig að ég er að skipta á milli þess að hafa fíngert ullargarn og röndótt verkefni yfir í að vera með léttlopa og lopapeysuverkefni.

Ég ætla að leyfa ykkur að sjá litina og þetta dýrlega garn.

Byrjum á lopapeysunni.
Ég er að prjóna lopapeysu á frænku mína, lopapeysuna Ranga og það er léttlopi og hér eru litirnir.  


Svo er ég að prjóna barnasamfesting.  Er það ungbarnaföt ef það er á 10-12 mánaða.  Allavegana er það samfestingur úr einu Tinnu Ýr ungbarnablaðinu ( man ekki númer hvað þar sem ég er ekki með blaðið hjá mér ).  Ég nota Yaku garn og það er æðislegt.



Svo fáið þið að sjá flíkurnar þegar þær eru tilbúnar. 

Ég er líka að klára Vettlinga á Kidda minn, kem með þá þegar þeir verða tilbúnir, á bara seinni þumalfingurinn eftir.






Monday, October 7, 2013

Blámi

Víkingurinn minn stækkar með miklum hraða þessa dagana og allt í einu tók ég eftir því að hann var vaxinn upp úr nær öllum þykku peysunum sínum.  Þannig að ég fór á stúfana til þess að finna peysu fyrir drenginn og auðvitað vildi ég prjóna peysuna handa stóra stráknum minum.  Þar sem litla prjónabúðin er næstum þvi við hliðin á vinnunni hans mannsins míns þá er afskaplega freistandi að kíkja þangað öðru hverju :)

Ég fann þessa peysu þar


Ég valdi þessa liti.



Stroffið tilbúið





1 hnykill af gráu búinn

Búkurinn, önnur ermin og byrjuð á seinni erminni búinn

Munstrið á peysunni búið



Peysan búin en hettan eftir.

Ég var svo sannfærð um að þessi peysa væri akkúrat á Víkinginn minn.  Mikið hafði ég rangt fyrir mér hehe,  Þessi peysa er nú heldur stór fyrir drenginn minn þannig að ég býst við að hún muni duga honum næsta árið hehe.

Rennilásinn kominn og einungis eftir að klára hettuna.


Kem svo vonandi fleiri skemmtilegar myndir af þessum fallega strák í peysunni.

Kær kveðja Prjónarós





Monday, August 5, 2013

Jón

Næsta verkefni er peysa á bróður minn og valdi hann peysuna Jón.


Stroffið

Stroffið búið

Munstrið neðst á myndinni búið




2 hnyklar af aðallit búnir í búk, 39 cm af 44.



Hér var ég búin að týna tölunni af hnyklum og þess háttar ;)


Svo er komið að því.
Peysan tilbúin og Benni kominn í hana.


Æðisleg peysa sem fer honum stórvel.





Friday, May 10, 2013

Hugo

Fyrir jól fékk ég það verkefni að prjóna karlmannspeysu.  Ég vissi að ég kæmist ekki í að byrja á henni fyrr en eftir jól en svo gaf handleggurinn sig og ég komst ekki í að byrja á henni fyrr en í mars.  Ég byrjaði á því að prjóna karlmannspeysuna Frost sem lítur svona út :



........... OG ég kláraði hana einu sinni.  Í smá tima eftir að ég klaraði hana þá fannst mér hún eitthvað skrýtin en fann ekki hvað það var.  Þegar ég fór til að kaupa rennilásinn í hana þá fattaðist hvað það var sem var svona skrýtið við hana.  Þar sem ég skipti úr álafosslopa yfir í 2x plötulopa þá hefði ég þurft að bæta við nokkrum umferðum í munstrið en því gleymdi ég.  Þvi urðu axlirnar allt of litlar og ég þurfti að rekja upp munstrið.  Í tilraun 2 þá breytti ég munstrinu og útkoman varð þessi.  
Nú er eftir að ganga frá endum og setja í hana rennilásinn og þá verður hún tilbúin.




Ef þið verðið heppinn þá gæti verið að eigandi peysunnar muni leyfa mynd af sér i peysunni ;)


Wednesday, April 18, 2012

Grána


Ég spurði bróður minn hvort ég ætti ekki að prjóna á hann húfu því hann hefur verið í vandræðum með að finna eina slíka sem passar.  Ég byrjaði á því að prjóna húfu á hann úr 2x plötulopa, nýta afgangslopa sem ég átti.  Sú húfa endaði þó ekki hjá bróður mínum heldur hjá mér því hún varð of lítil á bróður minn og garnið búið. 

Hér má sjá húfuna á hausnum á Benna bangsa :)  Benni bróðir minn gaf Víkingi Atla Benna bangsa fyrstu jólin hans Vikings Atla.  Víkingur lánaði Kára Steini Benna bangsa þar til herbergið hans Víkings Atla væri orðið alveg tilbúið.  Mér fannst viðeigandi að Benni bangsi yrði fyrirsætan á húfunni Gránu því hún var upphaflega ætluð Benna bróður.

Wednesday, March 28, 2012

Krummapeysan min

Hér er nýjasta peysan mín sem ég hef klárað :)  Krummapeysan mín.  Fór gróflega eftir uppskrift fra Litlu prjónabúðinni en breytti henni eftir mínum hentugleika.  Hun er er úr 2x plötulopa.  Passar a ca 6 ara.

Þessi er til sölu.

Tuesday, March 27, 2012

Lopi

Ég hef verið að prjóna lopapeysur undanfarið og er robotryksugan farin að kvarta. Hún gafst svo upp i dag þannig að ég þurfti sjálf að fara yfir gólfið með stóru ryksuguna þar sem lopinn sem leggst yfir allt gólfið hafði svoleiðis fyllt robotinn að hann fór í nett verkfall.

Allavegana þá er ég núna að prjóna lopapeysu á Kidda, búin með búkinn og ermarnar og er byrjuð á mynsturbekknum. Það finnst mér skemmtilegasti hlutinn af peysunni, þá er líka svo litið eftir af peysunni hehe.

Ef þið vitið um einhvern sem vantar að láta prjóna lopapeysu þá megið þið hafa mig i huga :)

Wednesday, February 1, 2012

Var


Var
Prjonaði þessa fyrir konu i Noregi sem eg hef verið að prjona dalitið fyrir.  Þessi er ur Lopablaðinu Lopi 29.  Þessi er i stærð Large en eg hef prjonað 2 aðrar eins og þessi nema þær voru i stærð M.  Alltaf skemmtilegt að prjona þessa peysu.