Nanbrauð
500g hveiti
1 1/2 tsk salt
20g pressuger ( ég notaði þurrger í staðinn )
250 ml vatn
80g jógúrt
1 tsk cummin
- Setjið allt saman í hrærivélina og vinnið saman með krók rólega í 2 min, vinnið svo á miðjuhraða í 5 mín.
- Látið degið standa í 1 klst . undir rökum klut.
- Skerið niður degið i þá stærð sem þið viljið.
- Hitið pönnu og hafið hana mjög heita, fletjið degið út mjög þunnt með kökukefli.
- Setjið smávegis olíu og smjör á pönnuna og steikið brauðið þar til góður litur er kominn á það, snúið þá við og steikið hinum megin.
Kiddi að "búa " til brauðið.
Brauðið steikt á pönnu
Flottu nanbrauðin okkar og þau voru líka góð á bragðið
Nammi namm