Uppskrift :
5 eggjarauður
75g af sykri
1 tsk af vanillusykri ( ég notaði vanillustöng og skóf innan úr henni )
1/2 L af rjóma
Daimpoki
Þeytið saman eggjarauðunum og sykrinum.
Þeytið í aðra skál rjómanum og bætið vanillunni saman við.
Blandið nú þessu tvennu saman ásamt daimi og öðru sem þið viljið hafa í ísnum.
Setjið í form og inn í frysti. Ef það á að vera i frystinum í einhvern tíma þarf að pakka því vel inn þvi ísinn tekur bragð af öðru sem er í frystinum.
Hérna er síða með fullt af ís-uppskriftum. Eruð þið lesendur góðir vanir að búa til ís, eigið þið ykkur uppáhaldsuppskrift eða bara uppáhaldsís ( keyptan þá ) ? Væri gaman að heyra álit ykkar :)
Knús í krús
No comments:
Post a Comment