Translate

Sunday, May 20, 2012

Barnaafmæliskaka

Ég hef alltaf keypt þau gestgjafablöð sem hafa innihaldið afmæli, saumaklúbba , kökur og annað i þeim dúr.  Svo fletti ég þeim fram og tilbaka þegar það eru afmæli og reyni að velja hvaða kaka/kökur eg mun hafa i það og það skiptið.  Það er ein kaka sem mig hefur alltaf langað að baka en alltaf hefur hún orðið útundan og ekki fengið að vera með.  



Barnaafmæliskakan ( gestgjafinn 11. tbl 2007 )

10-12 sneiðar

250g smjör, mjúkt
300g sykur
4 egg
1 1/2 tsk lyftiduft
2 1/2 dl mjólk
1 tsk vanilludropar

1/2 -1 tsk matarlitur, ég notaði bláan

1/2 dl kakó
2 msk mjólk

  • Hitið ofninn i 160°C
  • Klæðið 22 cm form með smjörpappír
  • Hrærið saman smjör og sykur þar til blandan verður ljós og létt
  • Bætið eggjum útí, eitt í einu og hrærið vel saman.
  • Setjið hveiti, lyftiduft, mjólk og vanilludropa út í og hrærið saman.
  • Skiptið deginu í 3 hluta. Setjið matarlitin ut i einn hlutann, kakó og mjólk i annan og sá þriðji heldur sínum ljósa lit.
  • Setjið kúfaðar matskeiðar af deiginu í formið, alla þrjá litina til skiptis þar til það klárast.
  • Teiknið nokkra hringi með prjóni, athugið að fara alla leið niður í botninn.
  • Bakið kökuna í 50-60 min.
Frostingur

2 eggjahvítur
250g sykur
2 tsk síróp
1/4 tsk cream of tartar
1 tsk vanilludropar

  • Blandið eggjahvítunum, sykri, síróp og cream of tartar saman í skál.
  • Þeytið kremið meðalhratt saman i skál yfir vatnsbaði með handþeytara í 4 mín.
  • Takið skálina af hitanum og þeytið áfram í 3-4 mín.
  • Bætið vanillu út i og hrærið aðeins áfram.
  • Ef þið viljið setja matarlit út i kremið þá er gott að setja litinn út i um leið og vanilluna.
  • Setjið plastfilmu yfir kremið ef þið notið það ekki strax.

Hér sést hvernig kakan er áður en frosting kremið var sett á kökuna


4 comments:

  1. Anonymous20 May, 2012

    þessa langar mig að prófa :)
    kv. Hrönn

    ReplyDelete
  2. Svakalega ertu dugleg að baka! Þetta eru allt svo flottar og girnilegar kökur :)

    ReplyDelete
  3. Arndís maí-mamma21 May, 2012

    Vá, en flott! En mig langar að sjá innan í hana :D Hvernig litu sneiðarnar út?

    ReplyDelete
  4. Þær litu auðvitað mjög vel út, litirnir brúnn, hvítur ( kremaður ) og blár blönduðust saman eins og í marmaraköku.

    ReplyDelete